Ekta Tjellingar

-Dívurnar Tjá Sig!!!

12.08.2010 16:20:10 / Hildur

Fyrst!!!

Vei vei vei ég varð aftur fyrst að blogga á nýju ári! Komið tvöþúsundogtíu og margt búið að breytast. Núna eigum við þrjár mömmur og eina verðandi, tvær giftar og tvær fluttar til útlanda.
Ég búin að halda mig í Köben síðan í júní og er farin að sakna ykkar svakalega mikið. Hlakka til að koma sjá ykkur og deila einum kaffibolla eða svo. Nema að þið komið hingað fyrst :)
Hvað ætli margir kommenti við þennan póst? kíkir einhver hingað inn?


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.03.2009 09:42:26 / Hildur

Eitthvað nýtt

Vá hvað ég var orðin leið á þessari bloggfærslu 8|
Næsti Föstudagur (3.apríl) Bekkjartryllingur, ég er spennt að hittast. Held að þetta eigi eftir að vera rosalega skemmtileg, sumarbústaðarstemming. Vantar bara heita pottin til að gera þetta fullkomið.
Eigum við bekkurinn að hafa einhvern hitting á undan? það gæti  verið mjög skemmtilegt að hittast einhverstaðar fyrst. Hvernig er stemmarinn fyrir því?

en jæja vildi bara aðeins breyta til, og stelpur ykkur er velkomið að blogga hér:haha:
best að halda áfram að læra um dauðastirnun lambakjöts og fitusprenginu mjólkur, spennandi shit:!:




» 0 hafa sagt sína skoðun

04.03.2009 12:24:29 / Hildur

Koooommma svo....

Fyrir þá sem ekki vita eða hafa gleymt þá heiti ég Hildur Hálfdánardóttir og hef verið meðlimur hér í dágóðan tíma, aðrar dömur sem eru einnig meðlimir eru Berglind, Sigurbjörg, Jóhanna, Ótta, Mónika og Sigurleif. Ég veit hvað það er töff að blogga þannig að kannski þetta ýti við þeim og heldur boltanum gangandi ;)

>

Ég var búin að lofa að segja ykkur meira frá mér í minni síðustu blogg færslu þannig að hér er stutta frásögnin. Byrjuð á 4 misseri í skólanum, byrjuð að kenna heimilsfræði í Smáraskóla( dreymdi draum um daginn þar sem ég var að kenna í smáraskóla og það voru allir ógeðslega vondir og leiðinlegir við mig, bæði nemendurnir og starfsfólkið!! Vona að það rætist ekki þegar ég fer aftur þangað í lok mars), búin að skemmta mér mjög vel með vinum mínum, fara í partý og útskriftir, ganga upp á fjalla og byrjuð að hrista af mér slenið sem ég safnaði að mér fyrir áramót. Er ennþá rauðhær, prófaði að klippa á mig topp og er úbersmart. Byrjuð í blakliðiJ það er svakalega skemmtilegt.

>

Síðasta helgi var rosalega skemmtileg föstududagurinn fór í undirbúning fyrir skemmtiatriði okkar í útskriftinni hjá Guðrúnu og á laugardeginum var veisla og við sýndum atriði okkar og fengum fordrykk heima hjá Guðrúnu og fórum síðan á Gamla vínhúsið í hafnafirði sem var A.Hansen, þar var rosalega góður matur og vín. Við skemmtum okkur þar þangað til að við gerðum það ekki!!
Núna um helgina er stefnan sett á Borgarleikhúsið þar sem við ætlum að fara á Sannleikan með Pétri Jóhanni, ég er búin að panta að við borðum fyrst heima hjá Páli, Sigurbjörgu og Samúeli!! OG að við förum aftur í fjallgöngu á laugardeginum!

>

Eitt í lokin!! Aron Örn og Elmar Ernir hvernig gengur að skipuleggja óvissuvissuna??


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.01.2009 11:57:50 / Hildur

Fyrst!!!!!!

Vóvóvó bara komið nýtt ár, ætli það þjóti svona fljótt áfram eins og 2008?

Langaði bara aðeins til að breyta til hérna, skrifa eitthvað skemmtilegt um MIG seinna :haha: því ég er svo hipp og kúl að allir vilja lesa um mig. Pottþétt.

Kveðja Hildur stoltur eigindi skeljungsbensínskorts. (Takk Berglind)


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 14:00:58 / Jóhanna

Jólakveðja!

Ég sendi öllum Tjellingum og gestum sem kíkja hingað inn mínar bestu óskir um:

Gleðileg Jól og Farsælt nýtt komandi ár!! Þakkir fyrir það sem er að líða!

Kveðja Jólahanna:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.12.2008 23:16:37 / Jóhanna

Ég er sjúklega töff!!!!!!!

Hellú darlings!
Sit núna hérna heima í alveg sjúklega vondu veðri, en það er allt í lagi því ég og Berglind vorum að koma úr Kringlunni og það er ekki rigning eða rok þar inni!!!
Verð nú að viðurkenna að ég er að verða soldið stressuð, það styttist og styttist í jólin og ég er bara búin að kaupa brotabrot af gjöfunum sem ég ætla að kaupa!
Svo ætla mamma og pabbi að stinga af og skilja mig eftir eina um jólin!! Þau ætla að skella sér til Tenerife og sóla sig, en ég verð bara hérna heim að vinna og vinna:s En þar sem ég er að fara til Danmerkur í febrúar þá veitir mér ekki af því að vinna mér inn eins mikinn pening og ég get!!! ÚÚÚ, ég er að fara til Dk 11.feb og ætla á tónleika með þeirri frábæru hljómsveit Kings of Leon! liggaliggalái!!!!!!!!!
Ég er líka búin að kaupa mér sjúklega flottan jólakjól og óggislega flottar leggings líka!! En það er bara eitt vandamál!!!! Mig langar svo að fara í kjólinn um helgina, en þá er hann ekki lengur nýr á jólunum!!! Verð bara að spara hann til jóla, en ég get alveg notað leggingsið, er það ekki???
Núna eru Sbba og Hildur greyin að læra og læra á fullu, þessi ógeðslega leiðinlegi tími, próftíminn, er á fullu hjá þeim, en ekki hjá MÉR!!!! Það er einmitt fríhelgi hjá mér núna og ég ætla sko að fá mér bjór um helgina!!! Ætla líka að reyna að plata einhverjar af stelpunum til að djóna mig! Ekkert fyllerí endilega, bara bjór, spjalla og skemmtilegheit!!!
 
Jæja, tilgangslausasta blogg í heimi er núna búið, þakka lesturinn!
Kveðja Jóhanna (sem er sjúklega töff)

p.s. hver vill vera memm í bjór um helgina???

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.11.2008 00:47:37 / Berglind

Það lekur.....

....af okkur kynþokkinn og ábyrgðarleysið! Já það er rétt hjá ykkur þetta eru við!
 
Það var einu sinni kynþroskuð stlepa sem kennd var við TÚRHAUS sem fór niður í miðbæ Reykjavíkur, á Íslandi (Kríslandi), á ónefndu laugardagskvöldi......
....fréttir herma að seinast sást til hennar á steini við Hlölla báta hakkandi í sig bát blódandi obg röflandi við gangandi vegfarendur!
....Fréttir herma að hún hafið gengið stefnulaust niður strætin í miðbæ RVK og rampaði hún á drakúla sem flutti hana heim til sín með allri sinni góðmennsku.
....Fréttir herma að þessi ÓNEFNID TÚRHAUS.....sé ennþá að reyna að rifja upp atburði ónefnda laugardagskvöldsins!

Rauði haninn fór ein í keilu í kvöld.....ráfaði þar á milli brauta að leita að ,,the girl, the day after the last day of piriod!" en fann þar ekkert nema hóp fyrverandi bankastjóra og bankastarfsmanna í tugvísum! aum á brá ráfaði hún enn einn hringinnn! Símalaus og allslaus með 1000 kall í vasa!!! ,,æ miiiig auma!"  segir hún í örvæntingu sinni......
Í örvæntingu sinni snýr hún sér að barþjóninum og lætur kynþokkann leka í snúningnum (þið viðtið eins og í Baywatch!) og segir hátt og snjallt... TO BEE CONTINUED......


JÆJA...lömbin mín og börnin mín þið fáið víst ekki meira af þessari sögu í bráð veit að flest ykkar eigi varla eftir að festa svefn yfir næstu færslu....

megi vættirnir vaka yfir ykkur og allt um kring í frelsarans nafni!

kveðja

Berglind og Hildur



En já! af okkur er það að frétta að við erum barasta ennþá með standpínu og bóner yfir yfirvofandi atburði eftir tvær vikur!  

» 14 hafa sagt sína skoðun

03.11.2008 21:58:21 / Berglind

Ég er númer 5 í röðinni....

...er sem sagt að bíða í símanum eftir sambandi við TAL þar sem netið mitt er svo fáránlega lengi að það tók meira að segja 2 mínútur að skirfa þessa setningu, jæja núna er ég númer 4, Takk fyrir að bíða. Bara búin að bíða síðan ég var nr. 9!!....uuuu ekkert að þakka!

Frábær saumaklúbbur að baki og allt heppanðist á besta veg! Flottur matur skemmtilegt og fallegt fólk og fullt af áfengi, hvað getur maður beðið um meira? Takk æðislega fyrir mig Jóhanna!

Eeeeen það sem mig langar að mynnast á er að ég er sko komin með STANDPÍNU úr spenningi á að komast í sumarbústaðin 21. nóvember! eruð þið ekki orðin spennt líka? :) Mitt markmið er að reyna að halda mig meira á mottunni en seinast og....já kannski líka að halda mér í fleirri fötum!! :)

Hef ekki neitt að segja en er loksins komin með samband og er að tjatta við gaurinn...þangað til seinna

bleeeeeeessss







» 2 hafa sagt sína skoðun

30.10.2008 15:47:16 / Hildur

Saumó á laugardaginn

Eitt tilgangsmikið blogg:!:8|
Úlalalala mér hlakkar svakalega til að koma í mexícósúpuna til þín Jóhanna! þú mátt ekki vera alltaf þunn og þreytt fyrir okkur súper fjörugu vinkonu þínar, víst þú ert líka að fara á skrallið á föstudaginn. Eru allir að fara að mæta?

Fór í heimsókn til Berglindar DÚLLU í gær og við vorum að skoða myndir frá henni Guðný þegar við vorum á laugarvatni.... munið þegar við vorum að gera kennaragrínið! það er mynd af henni Berglindi að leika Connie og Sammi og Palli eru nemendurnir og þegar Berglind sá þessa mynd var hún alveg.. er þetta Connie!!! og svo sá hún að þetta var bara hún sjálf! Berglind kann sko að koma sér í hlutverk:) :):):):):):):) híhíhíhí

Vissuði að það er ekkert svo langt í jólin, bara tæplega tveir mánuðir.... ég er búin að ákveða að gefa bara kerti og spil! halda svona í gamlar hefðir. eða var þetta nokkuð hef? var þetta ekki bara gjöfin því að það átti engin pening? núna á ég enga peninga og ætla að bregða á sama ráð;)

Pís át pípól




» 5 hafa sagt sína skoðun

22.10.2008 20:17:29 / Hildur

Á morgun segir sá lati.

Þessi speki á svo sannarlega við mig þessa dagana.... ég reyni að gera sem minnst í dag og geyma það þangað til á morgun. En ég komst nú að því að það er ekkert svo gott..
Ætlaði að skipta um dekk í gær en ég nennti ekki út, drullaði mér nú samt til að hringja og panta réttu dekkin handa mér og fékk verðið sem var 8900 dekkið, þegar ég vaknaði í morgun var búið að snjóa og snjóa og allir þutu út á dekkjaverkstæði.  Þegar ég mætti á svæðið var klukkutíma bið!! og maðurinn tilkynnti  mér að þeir voru bara í þessu að hækka verðið á dekkjunum um 200 kall:( Hefði ég farið í gær þá hefði ég sparað mér 800 kall og smá tíma!

Ætlaði að setja þvott í þvottavélinna en nennti því ekki... hvað gerist þá? þá kemur ekki góð lykt.
Ætlaði að fara að versla en nennti ekki út... engin matur inn í ískáp og ég þurfti að fá mér spagettí.

Ætlaði að vera dúlegri í ræktinni en er ekki búin að vera það... þannig að alltíeinu bara komin björgunarhringur og undirhaka!!
Þannig að ég segi GERIÐI ÞAÐ SEM ÞIÐ GETIÐ Í DAG EKKI GEYMA ÞAÐ TIL MORGUNS.:d

Kennarinn minn sagði að hámarks einbeiting heilans á einhverju ákveðni efni eru um 7 mínútur en ég held að ég sé ekki sammála því, allavegana ekki með minn heila ég hef svona 3 mínútu einbeitingu... er eiginlega búin að gleyma um hvað ég ætlaði að skrifa!! en það átti allavegana að vera hnitið og skemmtilegt. Er búin að vera í klukkutíma með 12 bls!!! hvað á það eiginlega að þýða.

Hlakka til að hitta ykkur öll (eða næstum því öll) á laugardaginn hjá Kára súpertöffara og konunni hans.


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.10.2008 22:27:45 / Berglind

Hvernig ertu eila heima hjá þér...ertu líka svona feitur og fyndinn þar?

....nei vá! ég ætlaði bara að reyna að hjálpa þér!!

enn ein helgin gengin í garð...og ég bara get ekki sagt að það sé slæmt! :)
Ég er lukkunar pamfíll sem syng ,,HVAÐ ER AÐ SKEEEEE..."

veit lítið hvað ég á að segja...er bara ein heima á föstudagskvöldi en er í megar stuði! partý hjá mér, ég meina flýjum! förum á Patró, Bíldó, Vík eða vott ever. Ég meina ég er með fulla vasa af peningum og tankurinn er hálfur!......æi þarna fékk ég naglann á höfuðið! þarf víst að skila skýrslu á mánudaginn, get ekki flúið!

Ég....
...er orðin svo svaklega leið á þessu krepputali....ég meina er fólk að væla yfir því að það geti ekki lengur keypt Ariel White lengur heldur þurfi það að kaupa Yplon? eða er það tegundin af klósetpappírinn sem er að trufla þessa þjóð sem fæddist með silfurskeiðina í munninum? æi veistu ég bara veit það ekki, mér bara líður vel! ég hafði vit á þvíað kaupa mér ekki íbúð og eyða ekki meira en ég átti, eða svona næstum því! hihihih ;) En auðvita vorkenn ég þeim sem eru að drukna í skuldum, en vorkenni ekki rass þeim sem töpuðu hagnaðinum sínum!
Ég segi bara eins og fólki með vitið ,,peningana eða heilsuna?" ,,peningana eða fjölskylduna?" :)

Ég.....
....þoli ekki falskt fólk! fólk sem er alltaf að segja hvað maður er frábær og æðislegur, shit gæti gubbað, þekki nefla eina þannig. Þrátt fyrir það þá drullar hún yfir alla hina en segir hvað ég sé frábær....greyið held að henni líði e-ð illa kellingunni!

Ég.....
....höslaði svartann gaur í hádeginu í dag! þetta er ekki grín, háalvara!

Ég......
.....datt í sturtunni í ræktinni, held að mákona mín hafi séð upp í heila á mér! hehe

Ég.....
.....var í gufum með 4 gaurum, prumpaði í gufunni, geggjað hátt! (samt ekki alvöru prump heldur bara læra prump!)  Fékk að heyra það frá einum gaurum að við stelpur værum ekkert svo penar eins og við viljum láta! hehehe þetta var svoooooldið fyndið!

Ég.....
....var í heitum potti og var með horslummu upp á enni og vissi ekki neitt!

Ég....
....veit ekki hvað ég á að segja meir en er nú tilturulega stolt af mér að hafa bloggað :)
Þið munið að við erum búin að stofna saumaklúbb, ég, Aron, Hildur, Einar, Sammi, Palli, Jóhanna, Guðrún, Ótta, Sibba og Mónika....er ég nokkuð að gleyma e-m. Þessir saumóklúbbar munu eiga sér stað á sunnudagskvöldum :)



Jæja ætla að halda áfram að sötra baukinn minn.....GÓÐa Helgi allir saman og skál í botn!
...sakna heimavistarinnar, nýjustu fréttir herma samt að Pálmi sé fluttur í næsta nágranni við mig,,,,,ættti kannski að fara að fela áfengið og klæða mig úr fötunum hahahaha (Mónika manstu?)hahahah.....

out

-Berglind_

» 10 hafa sagt sína skoðun

07.10.2008 16:54:10 / Hildur

Tryllt helgi framundan

Vei vei vei stelpur við erum að fara að hafa tryllt tryllt stuð um helgina. Hlakkar svo mikið til að fara út úr borgini og hafa kósý og notarlega helgi með ykkur öllum:) Heitur pottur og hvítvín, brunch og fullt fullt af pönnukökum:d
ég sibba og jóhanna ætlum að fara á undan og gera allt tilbúið handa ykkur hinum sem þurfið að vinna, við verðum búnar að verzla og koma okkur fyrir í bústað, kveikt verður á kertum og rólegt og rómantískt verður á fóninum......


En að örðrum málum!! ég og sibba erum að fara að hlaupa og í sund aftur þennan fösudag og öllum er velkomið að koma með! hafið bara samband elskurnar mínar:!:


Takk fyrir gott afmælispartý Iðunn og Ágústa!! þið kunnið greinilega að halda þau;) it was awsome awsomer...

  
Bara tvær myndir sem eiga að hita ykkur upp fyrir helgina...



» 6 hafa sagt sína skoðun

03.10.2008 19:54:45 / Jóhanna

Ótta Ösp á afmæli í dag!

Hún elsku Ótta okkar á afmæli í dag! Ég veit að ég er að skrifa þetta frekar seint og að það er lítið eftir af deginum, en þar sem ég er búin að vera á næturvöktum undanfarið, þá er sólarhringurinn aðeins öðruvísi hjá mér núna, þannig að ég er löglega afsökuð! ;)
En allaveganna, Elsku Ótta, til hamingju með að vera komin í fullorðina manna tölu!
Læt eina mynd fylgja með af skvísunni


Njóttu það sem eftir er dagsins elskan mín! Og æeg ætla að skora á þig að koma með næsta blogg!!
Bæjó Jóhanna:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.09.2008 17:14:23 / sibba

ERUÐI Á LÍFI ELSKU HNOÐRARNIR MÍNIR???


...Er strax farin að sakna ykkar 8|

...Ég og Hildsi vorum að ræða "healthy Friday", sund, kósý og gott í gogg? Til í það?
...Endum svo helgina í trylltum dansi í afmælinu hjá skvísunum á lau
...Sukk og hangover á sunnudaginn, mæli með sleepover!
...Tvær vikur í næsta bústað aka ölfusborgir, strax farin að telja niður, það var svo beeeeelað gaman í grímsnesinu!!!

-Sibba *28dagar í Afríkuna* :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.09.2008 13:45:33 / Jóhanna

Sibba á afmæli í DAG

Hún elsku Sibba okkar á afmæli í dag! Núna telst hún loksins til fullorðina, enda orðinn 24ára skvísan:)
Innilega til hamingju með afmælið elskan mín! Njóttu dagsins:)
Hérna er einmitt ein mynd af stelpunni í þeim stellingum sem við könnumst flest öll við;) Love you baby:)

Sibba með öl-ið sitt

Já og eitt en, sem ég má ekki gleyma, hann Óli, tvíbbinn hennar Sibbu, á auðvita líka afmæli í dag! Til hamingju með það Óli minn og líka til hamingju með þessa æðislegu systir sem þú átt! Hún er pottþétt besta afmælisgöf sem þú hefur fengið:)

Síjú leiter gæs
    Jóhanna8)

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20
Klukkan
Leitarbox